<Gee> Arsenal á leik á morgun laugardag gegn Bolton. Mig er búið að hlakka til alla vikuna. Enda langt síðan okkar menn kepptu seinast. Þetta eru góðir tímar. Hver leikur er hrein unun að horfa á og alltaf jafn gaman.
Fullyrðing : Ef Arsenal vinnur Bolton á heimavelli á morgun. Þá erum við meistarar, það er það einfalt. Liðið er þar af leiðandi einfaldlega ósigrandi í þessari deild.
Leikurinn á morgunn verður vonandi létt upphitun fyrir miðvikudaginn. Þó geta Bolton verið liprir á köflum. okkar menn eru hreinlega miklu betri á öllum sviðum knattspyrnunar og þeir eru þar að auki funheitir.
Chelsea leikirnir eru hinsvegar það sem kitlar mest spennutaugarnar hjá mér núna. Það verða athyglisverðar rimmur. Það er stórmunur á að keppa í deild eða Evrópudeild. Þó erum við búnir að vinna þá 3 á þessari leiktíð og höfum þar af leiðandi gott sálfræðilegt forskot, einnig er liðið okkar einfaldlega betra.
Við skulum bara vona að fótboltaguðirnir geri ekki neinn skandal í þessum leikjum og þá ætti þetta allt fara Arsenal í hag.
Góðar fréttir af meiðslum. Bergkamp, Ljungberg og Aliadere eru allir orðnir fit og verða sennilega allir í liðinu á morgun. Lítil meiðsli er stór factor í möguleikum liðsins í framtíðinni. Þar sem við erum í svo mörgum keppnum þá má búast við e-h forföllum.
Líklegt lið á morgun.
Lehman
Lauren Kolo Sol Cole
Ljungberg Gilberto Vieira Pires
Bergkamp Henry
Semsagt aðalliðið - Wenger vill fá þá vel vakandi á miðvikudaginn. Gilberto fær deildarleikinn, Edu fær evrópuleikinn.
-
Mál Rio var tekið fyrir aftur í Bretlandi í þessari viku. Honum var sagt að þegja, hunskast heim og skammast sín. 8 mán standa.
Man U er byrjað að minna mig á lítinn ofdekraðann strák sem er búinn að fá allt upp í hendurnar í 10 ár. En skyndilega gerir hann e-h slæmt af sér og fær ekki sínu framgengt í kjölfarið.
Þetta er klúður út í gegn. Kaupir leikmann á 30 milljónir punda, hann gleymir síðan að mæta í lyfjapróf og fær 8 mánaða bann í kjölfarið. Þetta er náttúrulega brandari og myndi hver maður með viti sennilega bara halda kjafti og taka út refsinguna. Þetta er nóg og klúðurslegt fyrir þó að menn fari ekki að væla í foreldrum sínum líka. "En ég vil, gémmér gémmér" sé ég fergie fyrir mér FIFA nefndinni. "Sestu niður og lestu andrésblaðið þitt !"... ;)
Ég hef sagt það áður að veislan sé að byrja. Það var bara barnaafmæli miðað við restina af þessum mánuði. Þvílíkt prógram...góða skemmtun.
</Gee> <!--3/19/2004-->
<Gee> Arsenal - Celta á morgun í Evrópukeppninni.
Það þarf e-h stjarnfræðilegt að gerast til þess að okkar menn klúðri þessu. Sjálfstraustið er svo svakalega hátt uppi og það mun fleyta þeim langa leið í þessum leik og í komandi leikjum.
Líklegt byrjunarlið er eftirfarandi :
Lehman
Lauren Sol Kolo Ashley
Ljungberg Vieira Gilberto Pires
Bergkamp Henry
Tel að Gilberto byrji frekar inná heldur en Edu einfaldlega afþví að við munum reyna að halda hreinu í þessum leik. Ekki viljum við byrja leikinn á fyrstu mín með því að fá mark á okkur. Þá held ég að Wenger haldi frekar í staðfestuna.
Bergkamp og Pires ættu að koma hressir eftir góða hvíld. Bergkamp búinn að fá mjög góða hvíld og Pires einn leik núna seinast í FA á móti Portsmouth.
Þar unnu okkar menn 5-1 á útivelli sem er rugl. Léku þeir við hvurn sinn fingur og sást það best hversu góða knattspyrnu Arsenalmenn eru að spila núna. Meira segja aðdáðendur andstæðinganna klöppuðu Arsenal lof í lófa í stöðunni 5-1. Það segir margt um liðið þessa dagana.
Tveir leikir á stuttum tíma á móti Manchester á næstunni. Einn á heimavelli í deildinni í lok mars og einn í FA cup strax í byrjun apríl. Þessu má líkja við Chelsea slaginn hér um daginn þar sem liðið sem ber sigur ur fyrri leiknum mun hafa gott sálfræðilegt forskot í seinni leiknum. Þó hef ég minnstar áhyggjur af Man U þessa dagana. Fleiri pælingar fara í hvort Arsenalmenn nái að halda góðri einbeitingu allt tímabilið.
Ég hef þó trú á Man U í kvöld á móti Porto. Þrátt fyrir að burðarstólpar þeirra séu í e-h andlegri krísu þá lið með þetta magn af seðlum og með söguna á bak við sig að komast í gegn um þessa portúgölsku hindrun.
2-1 eða jafnvel 2-0 eru lílegar lokatölur. Þó verður þetta sennilega ekki áferðarfagur fótbolti og þar af leiðandi mörkin í sama stíl.
-
Real - Bayern. Var búinn að spá Real áfram í seinustu umferð út á þessi mistök Kahns svo meiðist Ronaldo illa í vikunni. Ronaldo er Evrópukeppna og heimsmeistarakeppna maður. Hann er alltaf bestur í þesskonar keppnum og fyrir vikið verður erfitt fyrir Real að fylla skarð hans. Líklega mun mæða mikið á samspili Figo og Raul til skapa mörk. Ekki nema Zidane töfri e-h skemmtilegt upp úr erminni.
Carlos í banni fyrir klaufarlegt atvik. Það kemur ekki til með að skipta máli. Þeir eiga annan heimsklassa í þessa stöðu. Solari.
Chelsea fer áfram - ekkert meira um það að segja.
Tvö góð kvöld framundan því seinni leikirnir eru jú yfirleitt alltaf skemmtilegri en fyrri leikirnir. Mikil spenna og mikil pressa á liðum. Þó mæðir sennilega mest á Real, Bayern og Man U í þessari umferð. Best að smella sér út í sjoppu og tippa eina lengju.
Góða skemmtun...
</Gee> <!--3/09/2004-->
<Gee> Arsenal 2008
Reyes Aliadere
Der Vart Appiah Hleb Pennant
Clichy Kolo Sanderos Skulason
Stack
Subs:
Fabregas
Renato
Bentley
Hoyte
Tavlardis
Smá pæling – hvernig liðið verður 2008-2010 ?
Þarna erum við mest megnis með leikmenn sem við eigum ásamt nokkrum kaupum.
Appiah er ungur varnarsinnaður miðjumaður frá Ghana. Virkilega duglegur varnamaður og minnir um margt á ungan Vieira. Hinsvegar þarf að fara signa hann því hann er byrjaður að banka a syrnar hjá Juve. 8 milljónir punda væri sanngjarnt í dag. Þó þykir það hæpið að Juve láti hann fara.
Der Vart er náttúrulega bara óskhyggja en möguleiki væri að fá þennan unga og efnilega leikmann á sömu kjörum og Reyes ? 10 milljónir punda strax og hækka upp í tæplega 20 milljónir árangurstengt. Þó er hann ekki meira virði en það. Líklegra þykir mér þó að það komi franskur leikmaður í þessa stöðu.
Hleb, þennan leikmann hef ég verið að fylgjast með í 3 ár. Hann verður einfaldlega betri og betri. Þó dapur varnarlega. En minnir um margt á ungann Zidane þó hreyfingarnar séu þó klunnalegri er leikskilningurinn hjá honum upp á 10.
Pennant, ég hef enn trú á stráknum, Hann hefur hörku hæfileika það tekur það enginn af honum. Ef hann pantar sér tíma hjá sálfræðingi og fer að haga sér eins og maður þá er hann pottþétt maðurinn í þessa stöðu. Annars er þetta nýtt Anelka dæmi.
Reyes, hann er okkar framtíðar fjárfesting númer 1,2 og 3.
Aliadére, ég trúi því að hann verði næsta stórstjarna frakklands. Hann er snöggur en þó ekki nóg og sterklegur enþá.
Clichy, þó getur Cole enþá spilað þessa stöðu árið 2008. En ég gæti vel trúað því að Cole langi til þess að prófa e-h annað í framtíðinni. Enda búinn að vera hjá Arsenal endalaust.
Kolo, ef hann meiðist ekki þá er þetta einn af okkar bestu framtíðarmönnum. Þvílíkur Super athlete.
Sanderos, er meiddur eins og er. En Wenger er nánast búinn að fullyrða að hann sé framtíðar maður. Nema hann nái sér ekki uppúr þessum meiðslum eða verði fyrir halastjörnu.
Skulason, þar held ég að við séum með einn vanmetnasta leikmann þessa framtíðarliðs. Ég trúi því að strákurinn fái nýjann samning í sumar og þá fari hlutirnir að gerast. Hinsvegar verður hann aldrei heimskalssi. Gæti átt í struggli með stöðuna ásamt Hoyte.
Stack, þó verður alveg örugglega annar svona reyndur markmaður keyptur á eftir Lehman – því það er það eina sem virkar. Ég hef ekki trú á því að skapa markmenn í liði sem ætlar sér stóra hluti. Mistök hjá markmönnum eru hreinlega og dýr til þess.
Endilega kommentið eða komið með ykkar framtíðarsýn á liðið...
</Gee> <!--2/27/2004-->
<Gee> Ég ætla mér ekki að gefa okkar mönnum einkunir fyrir leikinn gegn Celta Vigo.
Liðið stóð sig vel. Var betri aðilinn allan leikinn þó nokkriir leikmenn Ccelta virkiðu frískir á köflum. Fyrsta mark Celta var verðskuldað. Seinna var verk Guðs. Sem gerir þó seinni leikinn aðeins meira spennandi.
Edu stimplaði sig inn eins og hann væri með sinnep í rassgatinu. Mér datt það í hug fyrir leikinn. Alltaf gaman að sjá þegar aðrir leikmenn í liðinu setja eitt mark ala Bergkamp style. Virkilega smekklegt mark og ekki var seinasta makrið síðra. Það var í raun markið sem sýndi klassamunin á þessum tveim liðum. Pires varla búin að sjást allan leikinn. Tvær “one-two” snertingar einn séns og Pires setur hann nett í fjær horn.
Þjálfari Vigo er þó greinilega hinn sæmilegasti því hann spilaði leikinn nákvæmlega eins og hann sagðist ætla að gera fyrir leikinn. Senda stungur milli Hafsents og bakvörðs því þar liggur veikleikinn í okkar háu vörn. Lauren og Clichy áttu í svolitlum vandræðum með það á köflum þó var Edu (Celta) virkilega ferskur hægra megin.
Nóg um það.
-
Alltaf gaman að spá. Þó þessir spádómar séu langsóttir og í raun út í bláinn þá ætla ég samt að láta þá flakka því þetta held ég að séu sterkustu liðin í evrópu í dag.
Svona fara átta liða úrslit :
Real
Arsenal
Monaco
Milan
Lyon
Chelsea
Porto
Deportivo
Svona fara 4 liða úrslit :
Real – Arsenal
Milan – Chelsea
Svona verða úrslitin :
Milan – Arsenal...
Við sjáum til...
-
Þetta Man U lið fer að verða athyglisvert. Þó má ekki afskrifa þá en þeir eru flest allir að fara á taugum í liðinu, það hefur verstu áhrifin á ungu strákana í liðinu. Keane gerði stór mistök þegar hann steig ofan á markvörðin hjá Porto. Þó verður seinni leikurinn þræl skemmtilegur fyrir vikið þar sem illt blóð er komið á milli stjóra klúbbana. Ég spái samt sem áður Porto sigri. Þeir virkuðu hressir í þessum leik og léku á leikmenn Man U eins og strengjabrúður. Bæði andlega og knattspyrnulega.
-
Samkvæmt mínum spádómum eru 4 sterkustu liðin í dag : 2 frá Englandi, eitt frá Spáni og eitt frá Ítalíu. Þó þykir mér hvorki Chelsea né Real vera sýna neinn heimsklassa bolta. Real hafa bara svo langa hefð og Chelsea virðist fara í gegn um hvern leikinn á fætur öðrum 1-0...meira að segja á sjálfsmörkum.
</Gee> <!--2/26/2004-->
<Gee> Celta Vigo - Arsenal á annað kvöld.
Leikurinn leggst nokkuð vel í mig. Þó verður fallið hátt loks þegar skellurinn kemur.
En sjálfsálitið er í hæstu hæðum og það hjálpar á morgun. Celta er vængbrotið og víst frekar slappt fram á við. Skítsæmilegir varnarlega.
Var að frétta að Vieira væri orðin heill. Það er góðar fréttir. Hann er driffjöður liðsins.
Byrjunarliðið verður því líklega eftirfarandi :
Lehman
Lauren Kolo Sol Glichy
Ljungberg Edu Vieira Pires
Henry Reyes
Þó er Ljungberg en tæpur samkvæmt arsenal.com
Edu verður sennilega eins og með sinnep í rassgatinu. Hann mun vinna eins og brjálaður enda ekki á hverjum degi sem hann fær að byrja inná í svona stórum leik. Hann er þróast í hörku player og fer að heimta sitt sæti í liðinu. Ég mun fylgjast grant með honum.
Einnig mun ég fylgjast grant með Lauren sem er dýrasti varnamaðurinn í þessari vörn þó ótrúlegt sé. Kostaði okkur 7 milljónir punda á sínum tíma. En þó hann sé sá dýrasti þá fer sénsum hans fækkandi. Hann er því miður okkar veikasti hlekkur þessa dagana. Hann er miklu meiri defensive midfielder heldur en bakvörður.
Leikurinn er ekki sýndur beint á SÝN. Enda svosem enginn smá slagur á sama tíma Bayern - Real.
Því verður sennilega lítið staðið upp frá sjónvarpinu annað kvöld nema þá til að fylla á sigurveigar vonandi.
-
Wenger kom inná veigamikinn punkt sem ég hef verið að tala við félaga mína um fyrir Evrópukeppnina.
Það að það sé aðeins einn riðill og síðan útsláttur mun hjálpa Arsenal gríðalega í þessari keppni.
Arsenal er sóknarlið og þegar það er komið að útsláttum þá geta lið ekki spilað uppá jafntefli eins og í riðlum. Það verður einfaldlega að spila sóknarbolta til þess að skora. Það hentar Arsenal afskaplega vel.
Eins og hefur sannað sig í þesskonar keppnum.
-
Aliadiere kom aftur inní varaliðið í kvöld eftir 6 vikna meiðsli. Þeir léku gegn Nottingham forrest.
Hann virðist ekki hafa gleymt miklu á þeim tíma. Hann setti eitt mark og spilaði ágætlega í rislitlum leik að mér skilst.
Takið annað kvöld. Þriðjudagskvöld frá. Veislan er að byrja.
</Gee> <!--2/23/2004-->
<Gee> Hérna er hugmynd handa þessum köppum á SÝN.
Leiðinlegt fyrir þá að það sé alltaf verið að gagngrýna þá. Því ekki að koma með smá hugmynd fyrir þá í staðinn.
Löngu kominn tími til að lappa aðeins upp á útlitið og hugmyndafræðina hjá þessum köppum. Yngja aðeins upp starfsfólkið þó svo það yrðu ekki nema 1 eða 2 nýjir strákar sem fylgjast vel með boltanum (nefni engin nöfn ;)).
Hvernig væri að stækka aðeins myndverið og gera aðeins meira úr þessu. Sérstaklega stórleikjum. Vera með einn til tvo svolítið hressa og frjálslega lýsendur og stjórnendur. Þeir eru svona comic releaf og sjá um hlutlausu hliðina. Síðan væri hægt að fá aðdáðendur beggja liða. Formenn eða bara Jóa Jóns úti bæ til þess að sitja í þægilegum sófa, spjalla fyrir leik, í hálfleik og eftir leik. Síðan kemur krítíski punkturinn. Sniðugast væri til að hafa þetta spennandi og dálítið prófessional að fá í útsendingu 1 til 2 dómara til þess að spreyta sig og segja sína skoðun ásamt aðdáðendum á hinum og þessum vafadómum og atvikum. Því satt best að segja er öllum sama um skoðun lýsandans. Hann er eins og ég segi comic releaf og hlutlaus.
Lítið mál væri að gera myndverið svolítið flott með, sófasetti, plasmaskjá og þar frameftir götunum. Ásamt því væri ekkert mál að fá spons í snakk, gos og jafnvel e-h sterkara ?
Þetta væri svona svipað og “ með hausverk á “ þættirnir sem voru hérna um árið nema þetta væri bara fótbolti. Auðvitað væri hægt að gera þetta við miklu fleiri íþróttagreinar. En það er alveg ljóst að fótbolti hefur algeran vinning hvað varðar vinsældir í dag. Og í raun skrítið að ekki sé gert meira úr þessu öllu saman.
Ég geri mér grein fyrir því að þessi stöð vinnur á lágu budgeti og er það kannski meginástæðan fyrir því að allar útsendingar í hvaða íþrótt sem er, er í sama stúdíó.
En ég fullyrði að þetta væri auðveldlega hægt að gera fyrir lítinn sem engann pening. Aðeins þyrfti að borga lýsendunum fyrir að skipuleggja þetta. Redda fólki og sponsi.
Ágætis hugmynd sem myndi hækka skemmtanagildið. Gera starf lýsendana aðeins frjálslegra og færa hitann yfir á þá sem þekkja fagið – dómarana.
Bara smá hugmynd.
Með kveðju
Garðar Eyjólfsson
</Gee> <!--2/21/2004-->
<Gee> Þetta stefnir allt í ánægjulegan laugardag. Arsenal vann Chelsea 2-1 á útivelli og liði sem var með okkur í topp þremur sætunum gerði jafntefli við Leeds á heimavelli 1-1
Staðan er því eftirfarandi á toppnum þegar 26 leikir eru búnir og 12 leikir eftir.
Arsenal – 64 stig
Man U – 57 stig
Chelsea – 55 stig
Enn og aftur sýndu okkar menn hörku karakter með því að vinna sig uppúr stöðunni 1-0 í 1-2 á 5 min kafla. Reyndar var aldrei spurning hvort liðið væri betra á vellinum þó ég átti mig ekki enn á þessu kerfi hjá Wenger að halda fengnum hlut 1-2 þegar liðið getur klárlega einfaldlega gert út um leikinn með því setja eitt í viðbót. Sennilega er þetta e-h úthugsuð og útreiknuð pæling að ná sér inn tíma og verjast þá frekar.
- Vörnin með nýja manninum Glichy át allt.
- Miðjan var ótrúlega sterk. 3 leikmenn þar sem éta upp allt sóknarspil hjá mótherjum. - Gilberto, Edu og Vieira.
Hinsvegar var sóknin ógnarslöpp og í raun til skammar ef við hefðum ekki Bergkamp.
Pires var týndur sóknarlega og sást ekki varnarlega. Henry sem átti að setja 3 í þessum leik (samkvæmt minni spá) var í hergæslu allan leikinn virkaði stirður en varð aðeins meira fljótandi eftir því sem leið á leikinn.
Hér koma mínar einkunnir :
Lehman 8 :
Steig ekki feilspor allan leikinn og var merkilega yfirvegaður þegar leikmenn Chelsea voru að reyna að æsa hann upp. Hann hreinlega tekur alla krossa og lætur engann vaða yfir sig.
Lauren 7 :
Missti nokkrum sinnum menn fyrir aftan sig á sínum kanti, virkar oft utan við sig en hækkar sig upp með einföldum og góðum sendingum ásamt því að sína alltaf góða baráttu.
Sol 9 :
Hann klikkar aldrei í svona leikjum, hann var hreinlega fæddur til þess að spila undir pressu.
Kolo 9 :
Kolo og Sol saman virðist vera ótrúlega góð blanda. Reyndar getur þessi leikmaður spilað hvar sem er. Sjaldan séð jafn duglegan leikmann. Hann steig ekki feilspor allan leikinn.
Glichy 8 :
Það fer að verða vandamál með þennan dreng. Ekki getum við alltaf haft hann á bekknum ? Hann er ótrúlega fljótur. Virkaði svolítið undrandi á köflum í leiknum enda nýr í liðinu í mjög mikilvægum leik. Hélt bolta vel og tæklaði menn út og suður. Það verður erfitt fyrir okkur að halda þessum strák ef hann á alltaf að vera á bekknum.
Gilberto 8 :
Búið að dúndra stráknum í nýja stöðu. Hægri kantari, virkar fínt þar sem Arsenal notar ekki krossa að neinu ráði. Kom svosem ekkert eitrað útúr honum sóknarlega en hann hélt bolta vel og kom honum frá sér. Fyrir utan að hann hefur margsannað sig varnarlega. Hefði viljað sjá hann skora...
Vieira 9 :
Hann ætlar sér greinilega titilinn þessi leikmaður. Gerði sjaldséð mistök í markinu hjá Chelsea. En bætti síðan fyrir það með því skora sjálfur. Annars gerði hann allt rétt. Sendingar, tæklingar, hlaup og hann meira að segja braut rétt á mönnum. Gat ekki talið hvað hann stútaði mörgum sóknum hjá Chelsea í fæðingu.
Edu 9 :
Annar leikmaður sem verður erfitt að hafa bara á bekknum. Þvílíkur baráttuhundur. Maður sér það í augunum á honum hvað hann hefur gaman af þessu. Framtíðarmiðjumaður. Stórhættulegur framávið ásamt því að vera virkilega góður varnarlega. Hann vantar aðeins þetta touch sem gerir leikmenn að stjörnum. MOM
Pires 6 :
Átti virkilega dapran dag. Á það til að hverfa þegar harka færist í leikinn. Þetta var hörkuleikur það var enginn spurning og fyrir vikið hélt hann sig svolítið til hlés. Hann er í smá krísu en samt sem áður leikmaður sem maður hefur alltaf inná þegar maður getur. Þegar hann smellur í gang og ég segi þegar. Hann verður mikilvægur á endasprettinum. Hvarf hinsvegar í þessum leik.
Bergkamp 9 :
Sendingin hjá honum í fyrsta markinu er nóg til þess að gefa honum þessa einkunn og þá tel ég ekki með aðrar snilldarsendingar. Einnig sýndi hann virkilega góða baráttu og nokkuð ljóst að hann ætlar sér einn titil til viðbótar áður en hann hættir. (Vonandi fleiri) Átti erfitt með að velja á milli Bergkamps og Edu sem manni leiksins. Þannig að ég kaus þá báða. MOM
Henry 7 :
Var búinn að spá honum þrennu í þessum leik. En hann var í gjörgæslu allan leikinn. Einnig virkaði hann striður eftir þessa hvíld sem hann fékk. Liðkaðist aðeins undir lok leiksins og átti nokkra góða spretti ásamt 2 eitruðum sendingum.
Ljungberg 6 :
Erfitt að koma inn í svona leik svona seint. Náði aldrei að komast í takt við leikinn en fínt fyrir hann að fá aðeins að sprikla fyrir þriðjudaginn.
Full time report hjá Arsenal.com
Sýnarmenn gerðu sig enn og aftur að fíflum. Fer ekkert nánar út í það ef ykkur vantar ferskt blóð í þáttinn þá er síminn hjá mér 891-7373. Ég skal með glöðu geði sýna ykkur hvernig á að fara að þessu ;)
Mike Riley dæmdi þennan leik alveg prýðilega. Lét hann fljóta vel og leyfði góða hörku og þá sérstaklega á miðjunni.
Dæmdi gult spjald á Eið Guðj. Í fyrri hálfleik fyrir leikaraskap. Réttilega enda sást í endursýningu að enginn snerting átti sér stað og þar af leiðandi enginn ástæða fyrir leikmanninn að henda sér í jörðina. Var líka bara klaufalega gert og í raun full gegnsætt. Mike dæmir síðan annað gult spjald á Eið Guðj. Fyrir hefnibrot á Glichy. Glichy tekur boltann af Eið og sprettar af stað í skyndisókn. Eiður eltir hann uppi og sprarkar í hælana á honum. Klaufalega gert og það sem meira er viljandi gert. Full augljóst og erfitt fyrir Mike annað en að vísa Eið af velli fyrir jafn klaufalegt og augljóst brot.
Þetta hafði Wenger að segja um frammistöðu okkar manna.
Fínn leikur og prýðis skemmtun. Sennilega besti leikur þessarar leiktíðar.
Ég efast um að Man U leikurinn verði betri...
Þetta eru góðir tímar – njótið þess meðan það endist.
</Gee> <!--2/21/2004-->
<Gee> Myles Palmer giskar að skrifað verði undir lánin á mánudaginn.
Best að skella sér út í ÁTVR og smella sér á eina bubblí flösku. Sá dagur sem staðfesting fæst á lánum verður merkur dagur í sögu okkar manna. Sennilega einn sá stærsti í áætlun okkar um yfirráð alheims !!!
En svona í alvöru talað. Ef okkar menn ná að halda sönsum og vera í topp 3 þangað til nýji völlurinn er byggður. Þá verðum við komnir langleiðina að festa okkur í sessi með þeim bestu í framtíðinni...
Merkur áfangi - gaman að verða vitni að þessu.
Held að maður geri sér ekki alveg grein fyrir því hversu góðir tímar þetta eru hjá okkur núna. Sumir hafa beðið í 30 ár eftir slíku góðæri. Þessi völlur færir okkur vonandi 30 ár af góðæri til viðbótar
Chelsea - Arsenal á morgunn. Útivöllurinn telur ekkert. Við stútum þessu á sálfræðinni.
1-5 fyrir okkar mönnum. Henry með þrennu...
Góða helgi. </Gee> <!--2/20/2004-->
/archives
|
muzINC Arsenal.is Myles Palmer
|